Skoraði af 70 metra færi - myndskeið

Lið Blacktown City.
Lið Blacktown City. Ljósmynd/bcfc.com.au

Danni Choi, leikmaður ástralska knattspyrnuliðsins Blacktown City, skoraði heldur betur óvenjulegt mark í dag, af miðjum eigin vallarhelmingi. 

Lið hans mætti Sydney United í 32ja liða úrslitum áströlsku bikarkeppninnar en bæði liðin eru í toppbaráttu í sínum riði í B-deildinni þar í landi. 

Staðan var 2:2 í framlengingu og leikmenn Blacktown City orðnir manni færri þegar Choi gerði markið magnaða sem sjá má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.

Það sneri leiknum algjörlega við, tíu leikmenn Blacktown City bættu við þremur mörkum í seinni hluta framlengingarinnar og unnu sætan sigur, 6:2. Þeir eru því komnir í sextán liða úrslit bikarsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert