Ögmundur Kristinsson, Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason léku allir allan leikinn fyrir lið sitt Hammarby þegar liðið lagði Gefle að velli, 2:0, í 16. umferð sænsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla í dag.
Hammarby er í harðri baráttu um að sleppa við að leika í umspili um fall úr efstu deild við Djurgården, en Hammarby er eftir þennan sigur tveimur stigum á undan Djurgården sem á þó leik til góða.