Markamaskína til Atlético Madrid

Kevin Gameiro skorar hér þegar Sevilla lagði Liverpool að velli …
Kevin Gameiro skorar hér þegar Sevilla lagði Liverpool að velli í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í vor. AFP

Spænska knattspyrnuliðið Atlético Madrid hefur fest kaup á framherjanum Kevin Gameiro sem kemur til liðsins frá Sevilla, en talið er að kaupverðið sé í kringum 33 milljónir evra. Gameiro gerir fjögurra ára samning við Atlético Madrid.

Gameiro skoraði 29 mörk í öllum keppnum fyrir Sevilla á síðustu leiktíð, en það dugði þó ekki til þess að vinna hylli Didier Deschamps, landsliðsþjálfara franska landsliðsins, fyrir lokakeppni Evrópumótsins í sumar. 

Gameiro gekk til liðs við Sevilla árið 2013 og aðstoðaði liðið til þess að bera sigur úr býtum í Evrópudeildinni þrjú ár í röð. Til þess að fylla skarð Gameiro fékk Sevilla argentínska framherjann Luciano Vietto á láni frá Atlético Madrid út tímabilið. Sevilla á svo forkaupsrétt á honum að tímabilinu loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert