Íslendingaliðið Malmö féll úr keppni í sænsku bikarkeppninni í kvöld eftir 3:1 tap fyrir 1. deildarliðinu Landskrona.
Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Malmö í kvöld en margir leikmenn voru þó hvíldir og í þeim hópi var Kári Árnason
Sundsvall, lið Kristins Steindórssonar, féll einnig úr keppni en liðið tapaði fyrir Norrtälje á útivelli 1:0.