Lærisveinar Ólafs deila toppsætinu

Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari Randers.
Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari Randers. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ólafur Kristjánsson stýrði lærisveinum sínum í Randers til 1:0 sigurs á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson lék allan leikinn á milli markstanga Randers sem var betri aðilinn í leiknum og hefði ef eitthvað er átt að vinna leikinn stærra fremur en Silkeborg að jafna metin.

Randers hefur byrjað deildina í Danmörku afar vel og er í 3. sæti með 14 stig en hefur leikið leik meira en önnur lið í deildinni.

Ólafur tók við Randers fyrir tímabilið og þjálfaði lið Nordsjælland í fyrra.

Silkeborg er á botninum án sigurs eftir sjö leiki og hefur aðeins tvö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert