Elías opnaði markareikninginn

Elías Már Ómarsson skoraði fyrir Gautaborg í dag.
Elías Már Ómarsson skoraði fyrir Gautaborg í dag. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Elías Már Ómarsson og félagar hans í IFK Gautaborg sigruðu Helsingborg 2:0 í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Þessi fyrrverandi leikmaður Keflavíkur var í byrjunarliðinu í dag en Hjálmar Jónsson sat allan tímann á bekknum.

Elías byrjaði leikinn frábærlega, en hann skoraði þegar innan við mínúta var búin af leiknum, fyrsta mark hans fyrir félagið.

Jakob Ankersen bætti við öðru marki er hann skoraði með þrumufleyg fyrir utan teig og lokatölur því 2:0 fyrir Gautaborg, sem er í fjórða sæti með 35 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert