Ólafur Ingi á skotskónum

Ólafur Ingi Skúlason.
Ólafur Ingi Skúlason. mbl.is/Eggert

Ólafur Ingi Skúlason opnaði markareikning sinn með Karabükspor þegar hann skoraði þriðja og síðasta mark liðsins í 3:0 sigri gegn Rizespor í tyrknesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Ólafur Ingi kom inn á sem varamaður á 43. mínútu og hann innsiglaði öruggan sigur sinna manna á 90. mínútu en hann gekk nýlega í raðir félagsins sem er með 3 stig eftir tvo leiki í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert