Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson skoraði þriðja mark Grasshopper er liðið sigraði Young boys 4:1 í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Ridge Munsy skoraði eina mark fyrri hálfleiks fyrir heimamenn en Michael Frey jafnaði fyrir gestina í upphafi seinni hálfleiks. Numa Lavanchy skoraði annað mark heimamanna á 74. mínútu og tveimur mínútum síðar var Rúnari skipt inn á völlinn.
Rúnar hafði verið inni á vellinum í tíu mínútur þegar hann skoraði þriðja mark Grasshopper. Caio gulltryggði sigur heimamanna með fjórða markinu í uppbótartíma. Bæði lið eru með 9 stig í 3. - 4. sæti deildarinnar eftir sex leiki.