Viðar sjóðheitur með Malmö

Viðar Örn fagnar marki með Malmö.
Viðar Örn fagnar marki með Malmö. Ljósmynd/.mff.se

Viðar Örn Kjartansson, landsliðsmaður í knattspyrnu, tryggði sænska liðinu Malmö 1:0 sigur á Sundsvall er liðin mættust í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var 14. mark Viðars í deildinni.

Selfyssingurinn hefur verið magnaður frá því hann kom til Malmö frá Jiangsu í Kína, en hann er kominn með fjórtán mörk í deildinni og er markahæsti leikmaðurinn sem stendur.

Hann skoraði sigurmarkið fyrir Malmö gegn Sundsvall í dag, en það kom á 64. mínútu eftir sendingu frá norska miðjumanninum Magnus Wolff Eikrem.

Viðar og Kári Árnason léku báðir allan leikinn fyrir Malmö í dag, en liðið er í efsta sæti deildarinnar með 45 stig eftir tuttugu umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert