Fyrsta deildarmark Rúnars í Sviss – myndskeið

Rúnar Már í búningi Grasshopper.
Rúnar Már í búningi Grasshopper. Ljósmynd/Andy Mueller

Landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson skoraði í gær fyrsta deildarmark sitt fyrir svissneska liðið Grasshopper. Rúnar Már kom sínu liði í 3:1 gegn Young Boys en Grasshopper vann leikinn 4:1.

Umboðsskrifstofan Total Football hefur Rúnar Má á sínum snærum og þar á bæ birtu menn tíst þar sem sjá mátti þetta ágæta mark Rúnars. Markið má sjá í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert