Barcelona kaupir sóknarmann

Paco Alcacer í landsleik með Spánverjum.
Paco Alcacer í landsleik með Spánverjum. AFP

FC Barcelona keypti í kvöld sóknarmanninn Paco Alcacer frá Valencia fyrir 30 milljónir evra.

Alcacer er 23 ára gamall og gerði fimm ára samning við stórveldið í Katalóníu. Munir El Haddadi verður jafnframt lánaður frá Barca til Valencia. 

Alcacer er 23 ára gamall spænskur landsliðsmaður og þykir með efnilegri leikmönnum Spánverja. Hann hefur skorað samtals þrjátíu mörk í deildinni síðustu þrjú tímabil. Gary Neville gerði hann að fyrirliða Valencia á síðasta tímabili. 

Alcacer hefur leikið 13 A-landsleiki fyrir Spán og skorað í þeim 6 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert