Góður útisigur Wolfsburg í München

Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn í dag.
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn í dag. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar hennar í Wolfsburg unnu góðan 2:1 útisigur á Bayern München í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. 

Sara, sem gekk til liðs við Wolfsburg fyrir nýhafið tímabil frá sænska liðinu Rosengård, lék allan leikinn á miðjunni. 

Lara Dickenmann kom gestunum yfir eftir hálftímaleik en Vivianne Miedema jafnaði metin þegar 20 mínútur voru til leiksloka. Alexandra Popp skoraði sigurmarkið fyrir gestina frá Wolfsburg þegar 15 mínútur voru eftir af leiknum og tryggði gestunum þrjú dýrmæt stig.

Wolfsburg er í fjórða sæti deildarinnar, með sjö stig eftir þrjá leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert