Albert með þrennu (myndskeið)

Albert fagnar marki.
Albert fagnar marki. Ljósmynd/twitter

Albert Guðmundsson skoraði öll þrjú mörk varaliðs PSV þegar liðið hafði betur gegn Fortuna Sittard í næstu efstu deild í Hollandi.

Albert hefur þar með skorað 4 mörk í átta leikjum með varaliðinu í B-deildinni á tímabilinu en hann var fyrr í þessum mánuði valinn í 25 manna leikmannahóp PSV í Meistaradeildinni.

Albert og félagar eru í toppsæti deildarinnar og eru með þriggja stiga forskot á NAC Breda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert