Herra Roma fertugur í dag

Francesco Totti.
Francesco Totti. AFP

Ítalski knattspyrnumaðurinn Francesco Totti fagnar í dag 40 ára afmæli sínu en þessi frábæri leikmaður er enn að spila og er fyrirliði Roma sem hann hefur leikið með allan sinn feril.

Totti, sem er oft nefndur herra Roma, er bæði leikjahæsti og markahæsti leikmaðurinn í sögu Roma og um nýliðna helgi skoraði hann sinn 250. mark í ítölsku A-deildinni. Hann lék sinn fyrsta leik með Roma árið 2003.

Totti varð heimsmeistari með Ítölum árið 2006 en hann lék 58 leiki með ítalska landsliðinu á árunum 1998 til 2006. Hann varð ítalskur meistari með Roma árið 2001 og hefur í tvígang orðið bikarmeistari með liðinu 2007 og 2008.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert