Jón Daði fjarri góðu gamni

Jón Daði.
Jón Daði. mbl.is/Guðmundur Hilmarsson

Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson glímir við smá meiðsli í nára og það er ástæðan fyrir því að hann er ekki í leikmannahópi Wolves sem á í höggi við Wigan í ensku B-deildinni í knattspyrnu.

„Pirrandi að vera ekki inni á vellinum vegna smá meiðsla í nára en ég ætti að vera tilbúinn á laugardaginn,“ skrifar Jón Daði á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert