Franski bakvörðurinn Patrice Evra hrósar gömlum óvini fyrir frammistöðu hans á vellinum.
Evra sendir Luis Suárez, framherja Barcelona, góðar kveðjur á Instagram-síðu sinni en þar skrifar Frakkinn: „Luis. Þú ert frábær leikmaður og sá besti númer 9. Til hamingju.“
Tilefni skrifa Evra er að að Suárez fékk afhentan gullskóinn í gær fyrir að verða markakóngur í Evrópu á síðasta tímabili en hann skoraði 40 mörk í spænsku 1. deildinni.
Þeir Evra og Suárez elduðu grátt silfur saman þegar þeir léku með Manchester United og Liverpool og Suárez var úrskurðaður í átta leikja bann þegar hann var sakaður um kynþáttaníð í garð Evra.