Neymar loksins búinn að skrifa undir

Neymar fagnar marki gegn Manchester City í Meistaradeildinni í vikunni.
Neymar fagnar marki gegn Manchester City í Meistaradeildinni í vikunni. AFP

Brasilíska knattspyrnustjarnan Neymar skrifaði loks undir nýjan samning við Barcelona í dag, þremur mánuðum eftir að hafa samþykkt að gera nýjan samning við félagið.

Neymar, sem er 24 ára gamall, skrifaði undir samning til næstu fimm ára eða til 2021. Í nýja samningnum eru ákvæði um svokallaða kaupklásúlu, sem gerir hvaða félagi sem er kleyft að kaupa kappann, en það myndi kosta viðkomandi félag 200 milljónir evra næsta sumar, 222 milljónir evra árið 2018, og 250 milljónir evra eftir það.

Neymar hefur skorað 91 mark í 150 leikjum fyrir Barcelona frá árinu 2013. Hann hefur unnið spænsku deildina tvisvar, Meistaradeildina einu sinni og spænska bikarinn tvisvar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert