Allt snúist til betri vegar með Emil

Emil Hallfreðsson í leik með Udinese.
Emil Hallfreðsson í leik með Udinese. AFP

Emil Hallfreðsson sneri aftur í byrjunarlið Udinese og lagði upp mark þegar liðið lagði Palermo, 3:1, í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Liðið fór upp um heil fjögur sæti með sigrinum.

Udinese lenti undir á tíundu mínútu leiksins en sneri blaðinu við. Emil lagði upp annað mark liðsins á 74. mínútu, en hann spilaði allan leikinn. Udinese er í tólfta sæti deildarinnar með þrettán stig eftir tíu leiki.

Þetta var annar leikur Emils með Udinese eftir að hafa misst af síðasta mánuði eða svo vegna meiðsla. Báða þessa leiki hefur Udinese unnið eftir að hafa ekki unnið fimm leiki í röð þar á undan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert