Nýliðarnir bættu metið

Leikmenn Leipzig fagna marki gegn Schalke í kvöld.
Leikmenn Leipzig fagna marki gegn Schalke í kvöld. AFP

Ekkert lát er á velgengni nýliðanna í RB Leipzig í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu. Liðið endurheimti í kvöld toppsætið með 2:1 sigri gegn Schalke.

Leipzig er taplaust í fyrstu 13 umferðunum í deildinni sem er met en liðið hefur þriggja stiga forskot á meistarana í Bayern München. Liðin eigast við á heimavelli Bayern, Allianz-vellinum, 21. þessa mánaðar.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert