Góður útisigur hjá lærisveinum Rúnars

Geert Dirinck, Rúnar Kristinsson og Arnar Þór Viðarsson.
Geert Dirinck, Rúnar Kristinsson og Arnar Þór Viðarsson. Ljósmynd/Kristján Bernburg

Lærisveinar Rúnars Kristinssonar í Lokeren fögnuðu í kvöld sínum öðrum sigri í röð þegar liðið vann góðan útisigur á Genk, 2:1.

Landsliðsmennirnir Ari Freyr Skúlason og Sverrir Ingi Ingason léku allan tímann í vörn Lokeren sem með sigrinum í kvöld komst upp í 11. sæti. Liðið er með 18 stig eftir 17 leiki í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert