Rúnar Már skoraði í sigri

Rúnar Már skoraði fyrra mark Grasshopper í dag.
Rúnar Már skoraði fyrra mark Grasshopper í dag. Andy Mueller/freshfocus

Rúnar Már Sigurjónsson og félagar hans í Grasshopper sigruðu Lausanne, 2:1, í svissnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Rúnar Már skoraði fyrra mark gestanna strax á sjöttu mínútu. Numa Lavanchy bætti öðru marki við fyrir gestina á 32. mínútu og staðan 2:0 fyrir Grasshopper að loknum fyrri hálfleik.

Heimamenn minnkuðu muninn í seinni hálfleik en nær komust þeir ekki og 2:1 sigur Grasshopper staðreynd. Rúnar Már var tekinn af leikvelli þremur mínútum fyrir leikslok en Grasshopper er í fimmta sæti deildarinnar með 21 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert