Sendi stuðningsmönnum miðfingurinn

Sergio Ramos er hér í þann mund að skalla knöttinn …
Sergio Ramos er hér í þann mund að skalla knöttinn í netið og tryggja Real Madrid eitt stig. AFP

Hægri bakvörður Real Madrid, Dani Carvajal, hefur beðist afsökunar á því hvernig hann fagnaði jöfnunarmarki liðsins gegn Barcelona í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær.

Miðvörðurinn Sergio Ramos jafnaði metin með skallamarki á 90. mínútu og niðurstaðan 1:1. Carvajal sneri sér að stuðningsmönnum Barcelona og sýndi þeim miðfingurinn í fagnaðarlátunum.

„Ég vil biðja stuðningsmenn afsökunar á því að hafa látið ögranir þeirra hafa áhrif á mig. Það ætti ekki að gerast,“ skrifaði Carvajal á Twitter að leik loknum. Real Madrid er í efsta sæti deildarinnar, sex stigum á undan Barcelona.

Mynd af Carvajal fagna markinu má sjá hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert