Rúnar Kristinsson og lærisveinar hans í belgíska knattspyrnuliðinu Lokeren gerðu 1:1 jafntefli við Zulte-Waregem í A-deildinni í kvöld. Ari Freyr Skúlason gerði mark Lokeren.
Sverrir Ingi Ingason og Ari Freyr léku báðir allan leikinn fyrir Lokeren í kvöld en Ari Freyr gerði eina mark liðsins eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.
Hann jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks og þar við sat. Lokatölur 1:1.
Lokeren er í ellefta sæti með 19 stig sem stendur.