Barcelona valtaði yfir Las Palmas

Suárez skoraði tvö í dag.
Suárez skoraði tvö í dag. AFP

Barcelona vann þægilegan 5:0 sigur á Las Palmas í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag.

Luis Suárez var eins og svo oft áður í miklu stuði hjá Barcelona og skoraði hann tvö markanna. 

Lionel Messi, Arda Turan og Aleix Vidal bættu svo við mörkum í sigri sem hefði getað verið enn stærri. 

Barcelona fór upp fyrir Sevilla með sigrinum og upp í 2. sætið en Real Madrid er á toppnum, tveimur stigum á undan og með tvo leiki til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert