Tap í fyrsta leik Hólmars

Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson. Twitter

Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Maccabi Haifa í ísraelsku deildinni í dag. Hann og liðsfélagar hans þurftu þá að sætta sig við 2:0 tap gegn Maccabi Petach Tikva.

Staðan var markalaus í hálfleik en á fimm mínútum í seinni hálfleik skoruðu Petach Tikva tvívegis og reyndust það einu mörk leiksins. 

Maccabi Haifa er í 5. sæti deildarinnar, 14 stigum á eftir toppliði Hapoel Beer Sheva. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert