Verð eins lengi og Barcelona vill

Lionel Messi á fullri ferð með Barcelona.
Lionel Messi á fullri ferð með Barcelona. AFP

Lionel Messi hefur alls ekki í huga að yfirgefa Barcelona á næstunni, samkvæmt viðtali við hann í tímaritinu Coach.

Messi hefur verið orðaður við Manchester City og sinn gamla stjóra sem nú ræður ríkjum þar, Pep Guardiola.

Í umræddu viðtali segir argentínski knattspyrnusnillingurinn að vissulega sé enska úrvalsdeildin öflug og Guardiola góður þjálfari, en hann sé ekki með neinar áætlanir um að yfirgefa Barcelona.

„Ég hef alltaf sagt að Barcelona hefur gefið mér allt og ég verð hjá félaginu eins lengi og það vill hafa mig," segir Messi sem hefur verið í röðum katalónska stórveldisins frá 13 ára aldri og unnið þar allt sem hægt er að vinna en hann verður þrítugur í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert