Viðar og félagar nálgast toppliðið

Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv.
Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv. AFS

Viðar Örn Kjartansson spilaði allan leikinn fyrir Maccabi Tel Aviv í ísraelsku deildinni í knattspyrnu í dag. Maccabi hafði þá betur gegn Bnei Sakhnin, 2:1. 

Scarione Oscar sá um að gera bæði mörkin sitt í hvorum hálfleiknum en á milli þess hafði Georginho jafnað fyrir Bnei Sakhnin. 

Með sigrinum minnkaði Maccabi forskot toppliðsins Hapoel Beer Sheva í sex stig. Beer Sheva er með 43 stig og Maccabi 37 stig þegar 19 leikir eru búnir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert