Ronaldo leikur á móti Angelinu Jolie

Cristiano Ronaldo er margt til lista lagt.
Cristiano Ronaldo er margt til lista lagt. AFP

Cristiano Ronaldo kemur til með að leika í tyrkneskum sjónvarpsþáttum sem bera nafnið Hayat Koprusu. Stórstjarnan Angelina Jolie mun einnig leika í þættinum. 

Ronaldo heimsækir Tyrkland reglulega og mun hann vera partur af þættinum sem er sýndur í Tyrklandi, mið-Austurlöndunum og Suður-Ameríku. 

Portúgalinn er í viðskiptum í Tyrklandi og hjálpaði hann forseta tyrkneska knattspyrnusambandsins að opna verslunarmiðstöð þar í landi árið 2011. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert