Töpum 79:0 og við gerum betur en Barca

Leikmenn Paris SG fagna fræknum sigri gegn Barcelona.
Leikmenn Paris SG fagna fræknum sigri gegn Barcelona. AFP

Pascal Dupraz þjálfari franska knattspyrnuliðsins Toulouse veit að lið sitt hefur ástæðu til að óttast um helgina þegar liðið sækir Paris SG heim í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Paris SG tók Spánarmeistara Barcelona í bakaríið í Meistaradeildinni í vikunni og vann þá 4:0 og hefur sigrinum verið fagnað vel og innilega í Frakklandi enda einn glæsilegasti sigur sem franskt félag hefur unnið í Evrópukeppni.

„Ég held að Barcelona hafi 700 milljónir evra til að spila úr á meðan við höfum 35. Það er 20 sinnum meira svo fjórum sinnum 20 er 80. Svo ef við töpum, 79:0, er rökrétt að tala um að við gerum betur en Barcelona. En ef við töpum, 79:0, þá munum við líta út eins og fífl,“ sagði Dupraz í gamansömum tón við fréttamenn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert