Elías Már á skotskónum

Elías Már Ómarsson skoraði í dag.
Elías Már Ómarsson skoraði í dag. Ljósmynd/KSÍ

Elías Már Ómarsson skoraði annað mark Gautaborgar sem vann Ljungskile, 3:2, í sænska bikarnum í knattspyrnu í dag. 

Gautaborg komst í 3:0 í fyrri hálfleiknum og kom mark Elíasar á 35. mínútu. Leikmenn Ljungskile skoruðu tvö í seinni en nær komust þeir ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert