Real með fjögurra stiga forskot

Gareth Bale fagnar marki sínu í dag.
Gareth Bale fagnar marki sínu í dag. AFP

Real Madrid hafði betur gegn Espanyol í spænsku A-deildinni í knattspyrnu í dag, 2:0.

Alvaro Morata kom Real yfir eftir rúmlega hálftíma leik og var það eina mark fyrri hálfleiks. Gareth Bale bætti við í seinni hálfleik og tryggði góðan sigur Real. Leikurinn var sá fyrsti hjá Bale síðan í nóvember en hann hefur verið að glíma við meiðsli. 

Real fór upp í 52 stig með sigrinum og munar fjórum stigum á Real og Barcelona sem er í 2. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert