Sara Björk á skotskónum í dag

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði í dag.
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði í dag. Ljósmynd/WfL Wolfsburg

Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fjórða mark Wolfsburg sem vann Sand, 4:1, í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. 

Wolfsburg minnkaði forystu Turbine Potsdam sem er í toppsætinu niður í eitt stig með sigrinum en Potsdam á leik til góða. 

Sara skoraði markið eftir klukkutíma leik og spilaði hún allan leikinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert