Albert með tvö fyrir PSV (myndskeið)

Albert Guðmundsson var á skotskónum í kvöld.
Albert Guðmundsson var á skotskónum í kvöld. Ljósmynd/Twitter

Albert Guðmundsson var á skotskónum með varaliði PSV í kvöld þegar liðið lagði NAC Breda að velli, 2:0, í hollensku B-deildinni í knattspyrnu.

Albert skoraði bæði mörk sinna manna og hefur þar með skorað 7 mörk í 23 leikjum með liðinu á leiktíðinni en PSV er í fimmta sæti deildarinnar. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá annað mark Alberts í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert