Viðar Örn hakkaður

Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv.
Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi Tel Aviv. AFP

Knattspyrnumaðurinn Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Maccabi Tel Aviv í Ísrael, lenti í því að óprúttinn aðili braust inn á Twitter-aðgang hans í gærkvöldi.

Viðar Örn vakti sjálfur athygli á málinu á Twitter, en þegar síða hans er skoðuð má sjá að í hans nafni hafa verið sendir út fleiri tugir tilboða þar sem Viðar á að vera að bjóða Ray Ban-sólgleraugu til sölu. Eru fylgjendur hans merktir í færslunum til þess að dreifa boðskapnum sem víðast, en þeim fylgir linkur sem ekki væri talið óhætt að smella á.

Ekki mun Selfyssingurinn þó hafa tekið upp þá iðju að selja sólgleraugu eins og hann árétti sjálfur, en þess í stað hefur hann raðað inn mörkunum í ísraelsku deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert