„Frábær leikur af okkar hálfu“

Leikmenn Atlético Madrid þakka stuðningsmönnum sínum eftir sigurinn í kvöld.
Leikmenn Atlético Madrid þakka stuðningsmönnum sínum eftir sigurinn í kvöld. AFP

Eftir 4:2 sigur gegn Bayer Leverkusen í Þýskalandi í kvöld stendur Atletíco Madrid vel að vígi í rimmu liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Þetta var frábær leikur af okkar hálfu og við hefðum í raun ekki getað náð betri úrslitum. Við vorum nánast með fullkominn leik í fyrri hálfleik,“ sagði Diego Simeone þjálfari Atlético Madrid eftir sigur sinna manna í kvöld en undir hans stjórn hefur Madridarliðið tvívegis komist í úrslit í Meistaradeildinni en tapað í bæði skiptin.

Fernando Torres kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og hann innsiglaði sigur sinna manna þegar hann skoraði fjórða markið þegar fjórar mínútur voru til leiksloka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert