Real Madrid mátti sætta sig við annað tapið í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu á tímabilinu í kvöld.
Evrópumeistararnir sóttu Valencia heim og biðu lægri hlut, 2:1. Heimamenn fengu óskabyrjun en þeir komust í 2:0 eftir 9 mínútna leik. Simone Zaza skoraði fyrsta markið á 4. mínútu og Fabian Orellana bætti við öðru fimm mínútum síðar. Cristiano Ronaldo minnkaði muninn fyrir Madridarliðið á 44. mínútu og þar við sat.
Real Madrid er í toppsætinu með 52 stig, stigi meira en Spánarmeistararnir í Barcelona sem hafa leikið leik meira. Valencia er í 14. sætinu með 26 stig.