Viðar Örn heldur áfram að skora

Viðar Örn Kjartansson skoraði annað marka Maccabi Tel Aviv í …
Viðar Örn Kjartansson skoraði annað marka Maccabi Tel Aviv í sigri liðsins í kvöld.

Viðar Örn Kjartansson hélt uppteknum hætti þegar hann skoraði annað marka Maccabi Tel Aviv í 2:0-sigri liðsins gegn Yehuda í 24. umferð ísraelsku efstu deildarinnar í knattspyrnu karla í kvöld. 

Maccabi Tel Aviv jafnaði Hapoel Beer Sheva að stigum með þessum sigri, en liðin eru jöfn að stigum með 50 stig á toppi deildarinnar. Hapoel Beer Sheva á leik til góða á Maccabi Tel Aviv. 

Viðar Örn skoraði þrennu í síðasta leik Maccabi Tel Aviv og hefur nú skorað 15 mörk í deildinni fyrir liðið. Viðar Örn er markahæsti leikmaður deildarinnar, en hann hefur skorað fjórum mörkum fleiri en næsti maður á listanum yfir markahæstu leikmenn deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert