Kvaddi með draumamarki gegn Englandi (myndskeið)

Lukas Podolski var heiðraður fyrir sinn síðasta landsleik í kvöld.
Lukas Podolski var heiðraður fyrir sinn síðasta landsleik í kvöld. AFP

Lukas Podolski spilaði sinn síðasta landsleik með Þjóðverjum í sigri gegn Englendingum, 1:0, í vináttuleik í Dortmund í kvöld og það er óhætt að segja að hann hafi komið mikið við sögu.

Podolski, sem er 31 árs gamall, var fyrirliði Þjóðverja í kvöld í sínum síðasta leik sem var númer 130 á ferlinum. Eftir markalausan fyrri hálfleik var það hann sjálfur sem tók af skarið þegar rúmar tuttugu mínútur voru til leiksloka.

Hann lét þá vaða af löngu færi og boltinn fór beint upp í samskeytin hægra megin, óverjandi fyrir Joe Hart í markinu. Myndskeið af markinu má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert