Özil valinn bestur í fimmta sinn

Mesut Özil.
Mesut Özil. AFP

Mesut Özil leikmaður Arsenal var í gær útnefndur besti leikmaður þýska landsliðsins í knattspyrnu fyrir árið 2016.

Þetta er í fimmta sinn á sex árum sem Özil er valinn bestur og tók hann á móti viðurkenningu sinn fyrir leikinn gegn Englendingum í Dortmund í gærkvöld en Özil gat ekki tekið þátt í leiknum sökum meiðsla.

Özil, sem er 28 ára gamall, á að baki 83 leiki með þýska landsliðinu og hefur í þeim skorað 29 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert