Er blanda af Ronaldo og Zidane

Karim Benzema.
Karim Benzema. AFP

Florentino Perez, forseti Evrópumeistara Real Madrid, er hrifinn af Frakkanum Karim Benzema þrátt fyrir að hann hafi oft verið gagnrýndur og orðaður burt frá liðinu.

Benzema hefur skorað 8 mörk í 22 leikjum í spænsku 1. deildinni með Real í vetur, sem er ekki talið nógu gott í herbúðum þeirra. En forsetinn hefur tekið upp hanskann, hrósað framherjanum og líkt honum við goðsagnir í sögu félagsins.

„Hann er besti framherji í sinni stöðu í heiminum í dag og besti franski leikmaðurinn yfir höfuð. Ég er viss um að hann verði áfram hjá Real Madrid, hann er eins og blanda af Zinedine Zidane og Ronaldo. Ég er gríðarlega ánægður með hann,“ sagði Perez.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert