Stórfurðuleg stytta af Ronaldo

Cristiano Ronaldo og bronsstyttan í bakgrunni.
Cristiano Ronaldo og bronsstyttan í bakgrunni. AFP

Eins og mbl.is greindi frá í gær var Cristiano Ronaldo, besti knattspyrnumaður heims, viðstaddur í dag þegar flugvöllurinn á eyjunni Madeira í Portúgal var nefndur í höfuðið á honum.

En við sama tilefni var einnig vígð bronsstytta af Ronaldo sjálfum sem standa á í flugstöðinni, en hún hefur ekki alveg fallið í kramið.

Eins og sjá má á myndinni sem fylgir hér efst er eins og andlitsdrættirnir séu nokkuð afmyndaðir, en dæmi hver sem vill.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert