Neuer fór undir hnífinn

Manuel Neuer.
Manuel Neuer. AFP

Manuel Neuer markvörður þýska landsliðsins í knattspyrnu og meistaraliðs Bayern München gekkst undir aðgerð í gær.

Neuer kemur til með að missa af næstu tveimur leikjum Bayern München en hann varð fyrir meiðslum á fæti á æfingu liðsins.

Neuer mun ekki verja mark Bæjara í deildarleikjunum á móti Augsburg og Hoffenheim en hann ætti að verða klár í slaginn þegar hans menn etja kappi við Borussia Dortmund í deildinni þann 8. apríl og Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar fjórum dögum síðar.

Sven Ulreich mun væntanlega fylla skarð Neuers en hann hefur aðeins spilað einn leik á milli stanganna hjá Bayern á þessu tímabili en það var í 3:2 óvæntu tapi liðsins gegn Rostov í Meistaradeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert