Anna skoraði fyrir nýliðana

Anna Björk Kristjánsdóttir.
Anna Björk Kristjánsdóttir. mbl.is/Golli

Anna Björk Kristjánsdóttir, landsliðsmiðvörður í knattspyrnu, skoraði mark nýliðanna í Limhamn-Bunkeflo í dag þegar þeir gerðu jafntefli, 1:1, við Piteå í sænsku úrvalsdeildinni.

Anna kom Limhamn yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks og allt stefndi í að það yrði sigurmark leiksins en í uppbótartíma jafnaði Lotta Ökvist fyrir Piteå.

Limhamn-Bunkeflo er þá með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en liðið leikur í fyrsta skipti í efstu deild og fékk Önnu til liðs við sig í vetur frá Örebro. Hún varð með þessu fyrsti markaskorari félagsins í deildinni frá upphafi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert