Aron Elís enn að glíma við meiðsli

Aron Elís Þrándarson.
Aron Elís Þrándarson. Ljósmynd/Aalsund.no

Aron Elís Þrándarson, leikmaður Aalesund í Noregi, er ekki búinn að ná sér góðum af meiðslum og verður ekki með liðinu á morgun gegn Herd í norsku bikarkeppninni.

Aron Elís meiddist á hásin í síðasta heimaleik gegn Lilleström og var af þeim sökum ekki með í markalausu jafntefli við Rosenborg á sunnudag. Á heimasíðu Aalesund kemur fram að hann sé á góðum batavegi.

Fyrirliðinn Björn Helge Riise verður heldur ekki með liðinu á morgun, en hann meiddist í leiknum við Rosenborg. Þeir Daníel Leó Grétarsson og Adam Örn Arnarson eru hins vegar kattfrískir og spiluðu meðal annars báðir allan leikinn gegn Rosenborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert