Paris SG tók Mónakó í bakaríið

Edinson Cavani skoraði tvö af mörkum Paris SG í kvöld.
Edinson Cavani skoraði tvö af mörkum Paris SG í kvöld. AFP

Edinson Cavani hélt upp á nýja samning sinn með Paris SG með því að skora 2 mörk þegar liðið rótburstaði Mónakó, 5:0, í undanúrslitum frönsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Julian Draxler, Blaise Matuidi og Marquinhos skoruðu hin þrjú mörk Parísarliðsins sem lék Mónakó grátt og engu líkara en að liðið sé með hugann við leikina við Juventus í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Paris vann Mónakó 4:1 í úrslitaleik deildabikarkeppninnar fyrr í þessum mánuði en liðin berjast um meistaratitilinn. Þau eru jöfn að stigum með 80 stig.

Paris SG mætir liði Angers í bikarúrslitaleiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert