Stuðningsmenn sænska meistaraliðsins Malmö sendu Zlatan Ibrahimovic skemmtileg skilaboð í stúkunni í 3:2-sigri liðsins á Djurgården í deildarleik á dögunum. Var það aðeins nokkrum dögum eftir að í ljós kom að Zlatan er með slitið krossband í hné.
„Láttu þér batna Zlatan – þú getur komið í sænsku deildina og spilað með eitt hné“ stóð á borðanum, en Zlatan byrjaði einmitt ferilinn hjá Malmö um aldamótin. Sænska fréttakonan Alexandra Jonson birti mynd af borðanum.
Zlatan verður frá keppni fram á næsta ár vegna meiðslanna, en hann verður 36 ára í haust. Hann hefur gefið það út að hann ætli hins vegar ekki að gefa ferilinn upp á bátinn.
Malmö-fans with a message to Ibra "Get well Zlatan - you can play in the Swedish league with one knee" pic.twitter.com/9W6c0IpHge
— Alexandra Jonson (@AlexandraJonson) April 24, 2017