60% líkur á að Griezmann fari til United

Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann. AFP

Antoine Griezmann, leikmaður spænska liðsins Atlético Madrid, var spurður út í hverjar líkurnar væru á því að hann myndi fara til enska félagsins Manchester United í sumar, í frönskum sjónvarpsþætti. Griezmann svaraði að líkurnar á skalanum 0-10 væri 6. 

Hann bætti svo við að framtíð sín yrði ljós á næstu tveimur vikum. Diego Simeone, þjálfari Atletico sagði á dögunum að það væri möguleiki að Griezmann myndi yfirgefa félagið en Griezmann skoraði 26 mörk fyrir Atletico í öllum keppnum á leiktíðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert