Kasper Dolberg, leikmaður Ajax, handleggsbraut stuðningsmann er hann hitaði upp fyrir leik gegn Willem II í lokaumferð hollensku A-deildarinnar í knattspyrnu um helgina. Daninn þrumaði þá bolta upp í stúku, með þeim afleiðingum að stuðningmaðurinn brotnaði.
Hinn 19 ára gamli Dolberg er með efnilegri leikmönnum Evrópu, en hann hefur skorað 23 mörk fyrir Ajax á leiktíðinni. Hann verður í eldlínunni er Ajax mætir Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á miðvikudaginn kemur.
Hér að neðan má sjá Twitter-færslu hjá stuðningsmanninum þar sem hann skammar Dolberg fyrir atvikið.
@kasperdolberg Can you please don't shoot over the goal during warm up? I was behind the Willem II goal and now have a double wrist fracture pic.twitter.com/JpSF9NgXfF
— Stijn Udo (@StijnU) May 16, 2017