Juventus kaupir Cuadrado

Juan Cuadrado.
Juan Cuadrado. AFP

Juventus hefur gengið frá kaupum á Juan Cuadrado frá Chelsea. Kaupverðið er um 17,3 milljónir punda. Kólumbíumaðurinn hefur verið að láni hjá Juventus í tvær leiktíðir en félagið á nú leikmanninn. 

Cuadrado hefur orðið Ítalíumeistari með Juventus bæði tímabilin sem hann hefur verið hjá félaginu. Hann kom til Chelsea árið 2015 eftir góða spilamennsku með Fiorentina og kólumbíska landsliðinu á HM 2014. 

Hann spilaði aðeins 13 leiki fyrir Chelsea. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert