Fáheyrt er að leikmenn skrifi undir jafnlanga samninga við sín félög og spænski miðjumaðurinn Koke, en hann framlengdi samning sinn við Atlético Madrid í dag til ársins 2024, eða um sjö ár.
Hinn 25 ára gamli Koke er uppalinn hjá Atlético og hefur spilað með aðalliði félagsins frá árinu 2009, alls 322 leiki í öllum keppnum. Koke á að baki 32 landsleiki á síðustu fjórum árum fyrir Spánverja auk þess sem hann lék með öllum yngri landsliðum þjóðarinnar.